
Háskólinn á Bifröst hefur svipt nemanda meistaragráðu í lögfræði vegna ritstuldar í lokaritgerð. Ágúst Einarsson, rektor háskólans segir að vandlega hafi verið farið yfir málið og niðurstaðan verið sú að óumdeilanlega hafi verið um ritstuld að ræða.
Jón Halldór Guðmundsson, sem skilaði lokaritgerð sinni í meistaranámi, segist, í samtali við Fréttablaðið, ekkert hafa brotið af sér.
Fréttablaðið segir að sérfræðingar Háskólans á Bifröst og sérfræðingur í öðrum íslenskum háskóla hafi gert úttekt á umræddri ritgerð og þeim ritum sem hún þótti líkjast. Niðurstaðan var að óumdeilanlega væri um ritstuld að ræða, að sögn Ágústs Einarssonar:
„Við tökum hart á þessu máli. Háskólinn er búinn að endurkalla einkunn nemandans fyrir þessa meistararitgerð. Þar með fellur meistaragráðan úr gildi.“
Jón Halldór segir í Fréttablaðinu að ekki sé tímabært að upplýsa hvort hann muni bregðast við þessari niðurstöðu háskólans, en spurður um fullyrðingu rektors um ritstuld svaraði hann blaðinu:
„Það er bara ekki rétt hjá honum. Hann er ekki lögfróður maður og veit ekki hver túlkunin er á bak við ritstuld. Ritstuldur er stórt og mikið mál sem maður leggur ekki í að ákæra menn fyrir án þess að skoða það nánari athugun. Ritstuldur og til dæmis brot á höfundarrétti er ekki sami hlutur.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.