amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 06:34
 
Frétt birtist 25. janúar 2010 klukkan 13:07

Ríkis­saksóknari vanhæfur í máli níumenninganna

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Sigrún Björg Elíasdóttir
Lögreglan gætir þinghússins vegna óeirða.

Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari hefur afturkallað ákæru á hendur níu mönnum fyrir að hafa ruðst í heimildarleysi inn í Alþingishúsið 8. desember 2008. Í ljós hefur komið að meðal brotaþola er þingvörður sem er hálfsystir eiginkonu ríkissaksóknara. Hann fer fram á að annar löghæfur maður fari með málið vegna vanhæfis.

Í tilkynningu ríkissaksóknara á síðu embættisins segir:

„Með ákæru, dagsettri 30. desember sl., ákvað ríkissaksóknari að höfða sakamál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á hendur níu nafngreindum mönnum fyrir brot gegn Alþingi, brot gegn valdstjórninni, almannafriði og allsherjarreglu og húsbrot, með því að hafa þann 8. desember 2008, ásamt hópi óþekktra manna, ruðst í heimildarleysi inn í Alþingishúsið við Austurvöll meðan á þingfundi stóð. Málið var þingfest 21. þ. m. en frestað til 9. febrúar nk. þar sem ákærðu óskuðu eftir fresti til að taka afstöðu til ákærunnar.

Með bréfi, dagsettu 22. þ. m., til Héraðsdóms Reykjavíkur var ákæra í málinu afturkölluð þar sem í ljós kom að meðal brotaþola er þingvörður sem er hálfsystir eiginkonu ríkissaksóknara en hún er með einkaréttarkröfu í málinu. Ríkissaksóknari telur sig því vanhæfan til frekari meðferðar málsins og því rétt að hann víki sæti í því, sbr. 26. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Er því ákæran afturkölluð sbr. b. lið 1. mgr. 170. gr. sömu laga.

Með bréfi sama dag til dómsmála- og mannréttindaráðuneytis var þess óskað að settur yrði annar löghæfur maður til að fara til að fara með málið vegna vanhæfis ríkissaksóknara, sbr. 26. gr. laga nr. 88/2008.

Valtýr Sigurðsson“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX