
Í vikunni hafði lögreglan á Selfossi afskipti af tveimur unglingspiltum sem voru á óskráðum torfæruhjólum í Hveragerði. Akstur þeirra var talinn ógætilegur og hættulegur. Hjólin voru bæði ótryggð. Annar piltanna sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og hvarf á braut. Hann fannst skömmu síðar og var boðaður ásamt forráðamönnum til viðtals á lögreglustöð, að því er fram kemur í tilkynningu Selfosslögreglunnar.
Þar segir enn fremur:
„Umráðamaður ökutækis var kærður fyrir að vera með litaða olíu á bifreið sinni. Mál hans verður sent til ákæruvalds til frekari meðferðar.
Tvær bílveltur urðu með klukkutstundar bili síðastliðið föstudagskvöld. Fyrra óhappið varð á Biskupstungnavegi við Þrastarlund þar sem jepplingur með fimm manns innanborðs valt á toppinn. Hitt tilvikið átti sér stað við Litlu kaffistofuna þar sem stór jeppabifreið valt þrjár til fjórar veltur. Ökumaður var einn í þeirri bifreið. Í hvorugu tilvikana var um alvarleg meiðsl á fólki enda allir í bílbeltum. Óhöppinn má rekja til mikillrar ísingar og krapa sem var á vegunum og hafði myndast skyndilega. Í óhappinu við Litlu kaffistofuna komu lögrelgumenn af höfuðborgarsvæðinu til aðstoðar enda á sama tím voru lögreglumenn bundnir í bílveltunni við Þrastarlund.
Um kl. 18 hljóp hross í veg fyrir vörubifreið á Suðurlandsvegi í Flóa. Hrossið drapst. Stuttu áður hafði lögreglu verið tilkynnt um laus hross við veginn og var verið að gera ráðstafanir til að smala hrossunum og koma þeim inn fyrir girðingu.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.