amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 10:28
 
Frétt birtist 23. janúar 2010 klukkan 18:53

Nýr rektor Háskólans í Reykjavík tekinn við

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
HR
Ari Kristinn Jónsson, nýr rektor Háskólans í Reykjavík.

Brautskráning frá Háskólanum í Reykjavík fór fram í Háskólabíói í dag, laugardaginn 23. janúar, auk þess sem nýr rektor, Ari Kristinn Jónsson tók við starfi, að því er fram kemur í tilkynningu skólans.

Í tilkynningunni segir:

„Alls voru 235 nemendur brautskráðir frá skólanum; 1 með doktorsgráðu, 59 með meistaragráðu, 134 með bakkalárgráðu og 41 með diplómagráðu. Flestir útskriftarnemanna eru úr viðskiptadeild eða 91. 56 nemendur útskrifuðust með próf úr tækni- og verkfræðideild, 33 nemendur útskrifuðust úr kennslufræði- og lýðheilsudeild, 32 úr lagadeild og 23 frá tölvunarfræðideild. Kynjahlutföll hinna brautskráðu eru mjög jöfn, 120 konur og 115 karlar. Elsti útskriftarneminn að þessu sinni er 68 ára og útskrifast hann með diplómagráðu í stærðfræði frá kennslufræði- og lýðheilsudeild.

Nýr rektor HR tekur við embætti

Tímamót verða í sögu Háskólans í Reykjavík í dag þegar dr. Ari Kristinn Jónsson tekur við embætti rektors af dr. Svöfu Grönfeldt, sem gegnt hefur embættinu í 3 ár. Ari Kristinn er 3. rektorinn í sögu skólans, en hann hefur um 3ja ára skeið gegnt stöðu forseta tölvunarfræðideildar HR. Áður hafði Ari starfað hjá NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna, og leitt þar stór rannsóknarverkefni á sviði gervigreindar.

70% útskriftarnema hafa fengið vinnu

Háskólinn í Reykjavík hefur fylgt þeim sið um margra ára skeið að kanna hversu stór hluti útskriftarnema hefur fengið vinnu við útskrift. Niðurstöður könnunarinnar að þessu sinni eru mjög ánægjulegar í ljósi atvinnu- og efnahagsástandsins, en um 70% þeirra sem ekki ætla í áframhaldandi nám eru nú þegar komin með vinnu.

HR í Nauthólsvík

Háskólinn í Reykjavík stendur á fleiri tímamótum um þessar mundir. Skólinn hefur nýlega flutt lungann af starfsemi sinni í glæsilega nýbyggingu skólans í Nauthólsvík. Í vetur stunda rúmlega 3000 nemendur nám við Háskólann í Reykjavík, þar af eru 2300 nemendur í nýja húsinu í Nauthólsvík, en öll starfsemi skólans flytur í nýja húsið í sumar. Búast má við að Háskólinn í Reykjavík útskrifi um 800 nemendur á þessu ári.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX