
Brautskráning frá Háskólanum í Reykjavík fer fram í Háskólabíói á morgun, laugardaginn 23. janúar, og hefst athöfnin kl. 13. Alls verða 235 nemendur brautskráðir frá skólanum; 1 með doktorsgráðu, 59 með meistaragráðu, 134 með bakkalárgráðu og 41 með diplómagráðu. Flestir útskriftarnemanna eru úr viðskiptadeild eða 91. 56 nemendur útskrifast með próf úr tækni- og verkfræðideild, 33 nemendur útskrifast úr kennslufræði- og lýðheilsudeild, 32 úr lagadeild og 23 frá tölvunarfræðideild. Kynjahlutföll hinna brautskráðu eru mjög jöfn, 120 konur og 115 karlar. Elsti útskriftarneminn að þessu sinni er 68 ára og útskrifast hann með diplómagráðu í stærðfræði frá kennslufræði- og lýðheilsudeild, að því er fram kemur í tilkynningu HR.
„Tímamót verða í sögu Háskólans í Reykjavík á morgun þegar dr. Ari Kristinn Jónsson tekur við embætti rektors af dr. Svöfu Grönfeldt, sem gegnt hefur embættinu í 3 ár. Ari Kristinn er 3. rektorinn í sögu skólans, en hann hefur um 3ja ára skeið gegnt stöðu forseta tölvunarfræðideildar HR. Áður hafði Ari starfað hjá NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna, og leitt þar stór rannsóknarverkefni á sviði gervigreindar.
70% útskriftarnema hafa fengið vinnu
Háskólinn í Reykjavík hefur fylgt þeim sið um margra ára skeið að kanna hversu stór hluti útskriftarnema hefur fengið vinnu við útskrift. Niðurstöður könnunarinnar að þessu sinni eru mjög ánægjulegar í ljósi atvinnu- og efnahagsástandsins, en um 70% þeirra sem ekki ætla í áframhaldandi nám eru nú þegar komin með vinnu.
Háskólinn í Reykjavík stendur á fleiri tímamótum um þessar mundir. Skólinn hefur nýlega flutt lungann af starfsemi sinni í glæsilega nýbyggingu skólans í Nauthólsvík. Í vetur stunda rúmlega 3000 nemendur nám við Háskólann í Reykjavík, þar af eru 2300 nemendur í nýja húsinu í Nauthólsvík, en öll starfsemi skólans flytur í nýja húsið í sumar. Búast má við að Háskólinn í Reykjavík útskrifi um 800 nemendur á þessu ári,“ segir enn fremur í tilkynningu skólans.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.
Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóðabankann
Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóðabankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einkafyrirtæki í þróunarríkjum.