amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 31. júlí 2010 - 08:04
 
Frétt birtist 22. janúar 2010 klukkan 14:02

Ríkis­stjórnin styrkir Haítí-för Íslensku alþjóða­björgunarsveitarinnar

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
UN
Gert að sárum konu eftir jarðskjálftann mikla í neyðarskýli í Port au Prince.

Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að leggja fram 35 milljónir króna vegna ferðar Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar til Haítí. Ennfremur ákvað ríkisstjórnin að veita af ráðstöfunarfé sínu 15 milljónir króna til hjálpar- og uppbyggingarstarfs íslenskra félagasamtaka á Haítí og verður þeim úthlutað í samstarfi við félagasamtök, að því er fram kemur í tilkynningu forsætisráðuneytisins.

„Auk þess hefur utanríkisráðuneytið veitt rúmum 22 milljónum króna til verkefna vegna björgunaraðgerðanna. Heildarframlag ríkissjóðs vegna jarðskjálftanna á Haítí er því orðið 81 milljón króna, en reiknað er með að 8,7 milljónir króna endurgreiðist úr almannavarnarsjóði Evrópusambandsins.

Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin (ICE-SAR) var send til björgunarstarfa á jarðskjálftasvæðunum á Haítí 13. – 21. janúar 2010. Grundvöllur þessa verkefnis er samstarfssamningur utanríkisráðuneytisins og Slysavarnafélagsins Landsbjargar um Íslensku alþjóðabjörgunarsveitina frá 23. maí 2008, en samkvæmt honum starfar sveitin erlendis í umboði íslenskra stjórnvalda. Í samræmi við samstarfssamninginn bera stjórnvöld kostnað af ferð sveitarinnar til björgunarstarfa. Auk þess var Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin sérstaklega styrkt til þess að afhenda Sameinuðu þjóðunum ýmsan búnað við brottförina. Þá hefur Ísland einnig aukið stuðning sinn við Matvælaaðstoð Sameinuðu þjóðanna vegna hamfaranna á Haítí,“ segir enn fremur í tilkynningu ráðuneytisins.

 
Fleiri fréttir

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóða­bankann

Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóða­bankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einka­fyrirtæki í þróunarríkjum.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX