
Hópbílar, Hafnarfjarðarbær, Alcan á Íslandi, N1 og Fjarðarkaup hafa tekið höndum saman um metnaðarfullt samfélagsverkefni í Hafnarfirði sem ber heitið FRÍSTUNDABÍLLINN, að því er fram kemur í tilkynningu Alcan.
„Verkefnið gengur út á að veita örugga og góða akstursþjónustu fyrir börn og unglinga á aldrinum 6 - 20 ára í tæpar sex klukkustundir á dag, eða frá kl.15:40 til kl. 21:20 alla virka daga. Fyrirhuguð tímatafla miðast við að meginþorri íþrótta- og tómstundastarfs fer fram innan þessa tímaramma.
Tilgangurinn er að draga úr því að foreldrar þurfi að standa í tímafreku „skutli“ til að koma börnum sínum til og frá íþrótta- og tómstundastarfi, með því að bjóða upp á raunhæfan og öruggan valkost.
Fjórir bílar frá Hópbílum munu frá og með mánudeginum 25. janúar n.k. þjónusta öll helstu hverfi Hafnarfjarðar á 20 mínútna fresti á ofangreindum tíma dagsins samkvæmt leiðakerfi sem nálgast má á vefnum www.fristundabillinn.is. Frítt verður í bílana út janúar. Skiptistöð verður við Íþróttahúsið Strandgötu. Ekið verður inn að öllum tómstunda- og íþróttasvæðum bæjarins á þann hátt að leitast verður við að koma í veg fyrir að farþegar þurfi að fara yfir umferðagötur þar sem hægt er að koma því við. Í hverjum bíl verður, auk bílstjóra, þjónustufulltrúi sem gegnir eftirlits- og öryggishlutverki og gætir þess að allt fari vel fram. Allar strætóstöðvar á leiðakerfi Frístundabílsins verða nýttar auk nýrra stöðva, svokallaðra „Vinkstöðva“. Verð fyrir umrædda þjónustu er kr. 6.000 í fjóra mánuði, eða sem samsvarar kr. 1.500 á mánuði.
Um er að ræða tilraunaverkefni sem lýkur 31. maí og verður þá tekin ákvörðun um framhald ef móttökur verða góðar. Til að gera verkefnið mögulegt hafa Hópbílar, Alcan á Íslandi, N1 og Fjarðarkaup styrkt framkvæmd þess, en öll hafa þau stutt myndarlega við íþrótta- og tómstundamál í Hafnarfirði. Auk þessa veitir Hafnarfjarðarbær verkefninu mjög þýðingarmikinn stuðning.
Það er trú þeirra sem að verkefninu standa að það feli í sér margvíslegan ávinning, meðal annars efnahagslegan og umhverfislegan, auk þess að stuðla að auknum lífsgæðum,“ segir enn fremur í tilkynningunni.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.