amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 07:19
 
Frétt birtist 21. janúar 2010 klukkan 23:23

Gerður Kristný handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Gerður Kristný (Guðjónsdóttir) rithöfundur hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt „Strandir“ í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs. Gerður Kristný er áttundi handhafi verðlaunanna frá stofnun samkeppninnar árið 2002, að því er fram kemur í tilkynningu Kópavogsbæjar.

Þar segir:

„Verðlaunaafhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, að kvöldi afmælisdags Jóns úr Vör, 21. janúar.

„Hugleiðin er farin en viðfangsefnið er samt beint úr raunveruleikanum,“ segir meðal annars í rökstuðningi dómnefndar fyrir vali hennar á vinningsljóðinu sem birt verður í Lesbók Morgunblaðsins um næstu helgi. „Áhrifin felast meðal annars í því að dvalist er einhversstaðar á mörkum hins huglæga og hlutlæga.“

Ljóðum er skilað inn í samkeppnina undir dulnefni og vissi dómnefnd ekki fyrr en afloknum störfum hennar hver hefði ort þau. Auk Gerðar Kristnýjar hlaut Bjarni Gunnarsson ljóðskáld sérstaka viðurkenningu fyrir „Smíðar“, sem þykir sýna „tvær hliðar skáldskapar á hugvitssaman og jafnframt skáldlegan hátt“.

Dómnefnd skipuðu Ingibjörg Haraldsdóttir rithöfundur, Sigþrúður Gunnarsdóttur bókmenntafræðingur og Þórarinn Eldjárn rithöfundur, sem var formaður. Dómnefndin komst að einróma niðurstöðu.

Þetta er í níunda sinn sem lista- og menningarráð Kópavogs stendur fyrir ljóðasamkeppni þessari en hugmyndin er upphaflega komin frá félögum úr Ritlistarhópi Kópavogs. Um 300 ljóð bárust í keppnina. Sigurvegarinn fær 500 þúsund króna peningaverðlaun og verðlaunagripinn, Ljóðstaf Jóns úr Vör, áletraðan með nafni sínu til varðveislu í eitt ár auk eignargrips sem Sigmar Ó. Maríusson gullsmiður hannaði. Höfundur ljóðsins, sem hlaut sérstaka viðurkenningu, fær 150 þúsund króna verðlaun.

Athöfnin í Salnum hófst með ávarpi Sigurrósar Þorgrímsdóttur, formanns lista- og menningarráðs, þar sem hún sagði m.a. að ætlunin með þessari hátíð ljóðsins væri að efla áhuga á ljóðlist og heiðra minningu Jóns úr Vör. Þá las núverandi handhafi Ljóðstafsins, Anton Helgi Jónsson, ljóð, Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar fluttu íslensk lög, nýr verðlaunahafi var útnefndur og dagskránni lauk með veitingum í boði lista- og menningarráðs í forrými Salarins.

Gerður Kristný er fædd árið 1970. Hún er rithöfundur í fullu starfi. Gerður hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar, meðal annars fyrstu verðlaun í ljóðasamkeppni Litrófs í Sjónvarpinu árið 1992, Bókaverðlaun barnanna árið 2003 fyrir Mörtu Smörtu og Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness 2004 fyrir skáldsöguna Bátur með segli og allt. Ljóð og smásögur Gerðar hafa birst í kennslubókum fyrir grunn- og framhaldsskóla auk þess sem ljóð hennar og smásögur eru í ýmsum safnritum, íslenskum sem erlendum. (Bókmenntavefurinn). Bók hennar Garðurinn var nýverið tilnefnd til Vestnorrænna barna- og unglingabókaverðlauna.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX