amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:56
 
Frétt birtist 21. janúar 2010 klukkan 14:04

Bókaþjóðin styður rústabjörgunarsveitina

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
UN
Hluti miðbæjar Por au Prince höfuðborgar Haítí.

Fjögur íslensk bókaforlög hafa í samvinnu við Eymundsson ákveðið að gefa sjö ný stórvirki á sviði útgáfu að söluverðmæti um 4,5 milljónir króna til stuðnings rústabjörgunarsveit Landsbjargar við að endurnýja búnað sem sveitin skildi eftir á Haítí til aðstoðar hjálparsveitum á svæðinu.

Stórvirkin verða seld í Eymundsson um allt land nú um helgina og er þetta upphaf átaks sem nefnist „Bókaþjóðin styður fólkið á Haítí“. Allir fjármunir sem koma inn fyrir sölu á þessum bókum renna óskertir til að endurnýja búnað sveitarinnar. Jafnframt hefur Eymundsson ákveðið að bæta 10% af allri sölu íslenskra barnabóka í verslunum sínum þessa daga við söfnunarupphæðina. Útgáfufélögin eru Forlagið, Bjartur & Veröld, Opna og Uppheimar. Íslenska utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að greiða fimm milljónir fyrir þann búnað sem rústabjörgunarsveit Landsbjargar skildi eftir en markmiðið er að bókaþjóðin bjargi því sem upp á vantar. Félagar í rústabjörgunarsveit Landsbjargar hleypa átakinu af stað í Eymundsson Austurstræti kl. 14 á morgun, föstudaginn 22. janúar. Átakið stendur til mánudagins 25. janúar.

Stórvirkin sem um ræðir eru Sagan og Ísland í aldanna rás 1700–1799 frá Forlaginu, Ásgerður Búadóttir – Veftir og Elías B. Halldórsson frá Uppheimum, Myndlist í þrjátíu þúsund ár og Jöklar á Íslandi frá Opnu og Svavar Guðnason frá Bjarti & Veröld en tvö síðast nefndu verkin eru tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sem veitt verða nú í febrúar.

Félag íslenskra bókaútgefenda hyggst standa fyrir fleiri verkefnum af þessu tagi á næstu vikum til stuðnings björgunarstarfi á Haítí. Félagið hefur enn fremur vakið athygli Evrópusamtaka bókaútgefenda á þessu framtaki og hvatt systurfélög sín til að leggja þessu brýna málefni lið.

Aukin þekking og bætt menntun verður lykilatriði í framtíðaruppbyggingu á hörmungarsvæðunum á Haítí. Þar munu bækur gegna veigamiklu hlutverki. Íslenskar bækur gagnast vitaskuld ekki beint í þessu skyni, en með því að breyta þeim í fjármuni með hjálp íslenskra bókaunnenda öðlast þær vængi og leggja þurfandi lið. Það er von þeirra sem að verkefninu standa að bókaþjóðin taki framtakinu vel – eignist kjörgripi en leggi jafnframt sitt af mörkum við uppbyggingu á hamfarasvæðunum.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX