
Ólafur Ragnar Grímsson og stofnunin Global Center, sem Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, stofnaði árið 2005, þegar hann sinnti sérverkefnum fyrir Ólaf Ragnar, koma við sögu í skýringu vefsíðunnar EUReferendum á frétt, sem birtist í breska blaðinu Sunday Times 17. janúar um rangar „ágiskanir“ um brotthvarf Himalajajökla.
Í fréttinni er sagt frá því, að líklegt sé, að viðvörun um, að megnið af jöklum Himalaja verði horfnir árið 2035, verði dregin til baka, vegna þess hve illa var staðið vísindalega að málinu hjá þeirri stofnun Sameinuðu þjóðanna, sem sendi hana frá sér.
Fyrir tveimur árum birti Intergovernmental Panel on Climate Change (IPCC) skýrslu, sem sögð var geyma nýjustu og nákvæmustu vísindaniðurstöður um áhrif hlýnunar jarðar. Þungamiðja í niðurstöðunum var, að jöklar bráðnuðu svo hratt, að þeir gætu verið horfnir í Himalajafjallgarðinum árið 2035.
Sunday Times segir, að síðustu daga hafi vísindamenn, sem stóðu að viðvöruninni, játað, að hún hefði byggst á frétt í New Scientist, vinsælu vísindatímariti, sem hafði birst átta árum, áður en skýrsla IPCC kom út árið 2007. Einnig hefur verið upplýst, að fréttin í New Scientist byggðist á stuttu símtali við Syed Hasnain, lítt þekktan indverskan vísindamann, sem þá starfaði við Jawaharal Nehru háskólann í Dehli.
Hasnain hefur síðan, að sögn Sunday Times, játað, að fullyrðing sín hafi verið „ágiskun“ (sepculation) og hún hafi ekki byggst á neinum formlegum rannsóknum. Blaðið segir, að hafi verið staðið þannig að málum, sé um einhver alvarlegustu mistök við loftslagsrannsóknir að ræða, sem enn hefðu verið kynnt. Til IPCC hafi einmitt verið stofnað í því skyni, að leiðtogar ríkja heims ættu völ á bestu vísindalegu ráðgjöf um loftslagsbreytingar.
Murari Lal, prófessor, sem hafði yfirumsjón með kaflanum um jökla í IPCC-skýrslunni, sagði, að hann mundi leggja til að lýsingin á bráðnun jökla yrði tekin úr skýrslunni. „Segi Hasnain opinberlega, að hann hafi aldrei haldið þessu fram, eða þetta hafi verið röng ályktun, þá mun ég leggja til, að fullyrðingin um Himalajajöklana verði afmáð í framtíðarmati IPCC,“ segir í Sunday Times.
Í skýringu EUReferendum á fréttinni í Sunday Times segir, að Syed Hasnain starfi nú hjá The Energy and Resources Institute (TERI), sem starfi á vegum Indverjans dr. R. K. Pachauris, formanns IPCC síðan árið 2002. Hasnain fari þar með forystu fyrir jöklarannsóknahópi, sem hafði fengið ríkulegan styrk frá bandarískum sjóði. Rannsóknirnar miði að því að kanna áhrif jöklabráðnunar í Himalajafjallgarðinum. Hasnain hafi þannig framfæri sitt nú af því að rannsaka afleiðingar eigin ágiskunar.
Með vísunar til þeirra orða Hasnains, að Himalajajöklarnir „muni hverfa innan fjörutiu ára vegna hlýnunar jarðar… og leiða til víðtæks vatnsskorts,“ hafi stofnun Pachauris, TERI, leitað til hinnar auðugu Carnegie-stofnunar í New York í gegnum félag (consortium), sem var að sögn EUReferendum undir forystu Global Centre, sem Kristján Guy Burgess stofnaði árið 2005.
Í nóvember 2008 fékk félagið 500.000 dollara styrk til „rannsókna, skilgreiningar og þjálfunar vegna öryggis- og mannúðarverkefna tengdum vatni í Suður Asíu, sem rekja má til bráðnunar Himalajajöklanna.“ Þetta hafi auðveldað dr. Pachauri að koma á laggir jöklateymi innan TERI undir forystu Hasnains.
Í EUReferendum segir síðan orðrétt 18. janúar:
„Global Center er einkarekin stofnun á Íslandi, sem tengist skrifstofu Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Markmið hennar er að móta „stór rannsóknaverkefni og þjálfunaráætlanir með þátttöku vísindamanna frá Suður Asíu, Evrópu og S- og N-Ameríku,“ þar gegnir TERI dr. Pachauris lykilhlutverki.
Síðan gerist það í þessum mánuði, 15. janúar, að forseti Íslands Grímsson og dr. Pachauri hleyptu af stað, með hópi frá Ohio State University, samstarfsverkefni með yfirlýsingu um, að TERI og Carnegie stofnunin í New York hefðu „tekið höndum saman“ um að verkefni á sviði jöklafræði og jarðvegsfræði.
Tilgangur samstarfsverkefnisins væri, að þeirra sögn, að „auka skilning á áhrifum loftslagsbreytinga á Himalaja og hinum margræðu afleiðingum fyrir leiðir til að stjórna vantsbúskap og matvælaframleiðslu á sléttunum undir fjöllunum.“
Rannsóknarsjóðurinn verður efldur með þeim 108 þúsund dollurum, sem Grímsson fékk sem Nehru-verðlaun í þessum mánuði.
Hvað sem þessu líður virðist Hasnain ekki lengur standa við fyrri „ágiskun“. Á fyrsta degi tveggja daga samráðsfundar um „Indverska Himalajajökla, breytingar og búsetu“ í október 2009 sagði hann, að vísindamenn spáðu „43% minnkun jökla að meðatali til 2070 og 75% minnkun við lok 21. aldar miðað við núverandi hitastig“ sem er langt frá því, að jöklarnir hverfi árið 2035.“
EUReferendum segir frá því, að Hasnain hafi fengið styrk frá Evrópusambandinu til að koma á fót stórri rannsóknastofnun í Latey Bunga í Mukteshwar með ýmsum útstöðvum.
Í frétt dagsettri 19. janúar hefur Press Trust of India, opinber fréttastofa forsætisráðuneytis Indlands, eftir Jairam Ramesh, umhverfisráðherra Indlands, að Indverjar standi berskjaldaðir gagnvart stofnun Sameinuðu þjóðanna, sem nú verði að draga til baka eigin „hræðslu“ viðvörun um, að jöklarnir yrðu horfnir 2035 vegna loftslagsbreytinga. Hann segi viðvörun IPCC undir stjórn Pachauris um brotthvarf jöklanna ekki styðjast við nein vísindaleg rök.
Í fréttinni segir, að Pachauri telji deiluna ekki snerta sig, hann beri „alls enga ábyrgð“.
Fréttaskýringu EUReferendum lýkur hins vegar á þessum orðum:
„Til þess er að líta, að með 500.000 dollara í bankanum og peningaflæði frá ESB þá hefur [IPCC]skýrslan þjónað tilgangi sínum og hann [Pachauri] hefur efni á að ganga á brott frá henni.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.