
Alls voru bókuð 77 verkefni hjá lögreglunni á Hvolsvelli síðast liðna viku, að því er fram kemur í tilkynningu hennar. Þar segir:
„Tvö umferðaróhöpp voru í vikunni. Engin meiðsl urðu í þessum óhöppum.
Í vikunni voru aðilar staðnir að ólöglegum rjúpnaveiðum á fjórhjóli. Um utanvegaakstur var að ræða. Mál þeirra verður kært og fær venjulega meðferð.
Í vikunni voru 19 teknir fyrir að aka of hratt í umdæminu Hvolsvöllur, en sá sem hraðast ók var á 128 km hraða og hlaut 70.000.- króna sekt.
Tveir voru teknir grunaðir um að hafa ekið undir áhrifum áfengis. Annar þessara ökumanna var að koma langa leið frá. Svo virðist sem hann hafi verið við drykkju á leið sinni undir stýri bifreiðarinnar.
Lögreglan kannaði í vikunni með ástand ökuljósa og voru afskipti höfð af ökumönnum þar sem ljósabúnaður var ekki í lagi á bifreiðum þeirra. Dæmi voru um að kerrrur væru með öllu ljóslausar á ferðinni. Þetta er mjög alvarlegt ef ökumanni er kunnugt um ljósleysið og kerran jafnvel ekki tengd í rafmagn í myrkrinu.
Framundan eru mikil ferðalög milli landshluta og fólk mikið að fara í jólaverslun. Gott er að ætla sér góðan tíma, fara varlega nú þegar allra veðra er von og snjórinn farinn að láta sjá sig.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.