amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 18. maí 2013 - 14:00
 
Frétt birtist 27. nóvember 2009 klukkan 12:31

9,3 milljónum úthlutað úr Samfélags­sjóði Alcan

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Alcan á Íslandi
Styrkveitingar úr Samfélagssjóði Alcan að þessu sinni eru 29 að fjárhæð samtals kr. 9,3 milljónir króna.

Úthlutað hefur verið úr Samfélagssjóði Alcan vegna þeirra styrkumsókna sem bárust sjóðnum frá maí síðastliðnum til og með október. Styrkveitingar að þessu sinni eru 29 að fjárhæð samtals kr. 9,3 milljónir króna. Alls bárust 70 umsóknir, að því er fram kemur í tilkynningu Alcan.

Þar segir enn fremur:

„Samfélagssjóðurinn styrkir verkefni í eftirfarandi málaflokkum sem endurspegla þau gildi sem Alcan á Íslandi leggur áherslu á:

  • Heilsa og hreyfing
  • Öryggismál
  • Umhverfismál
  • Menntamál
  • Menningarmál, þar með talin góðgerðarmál og samfélagsverkefni af ýmsu tagi

Eftirfarandi hlutu styrk að þessu sinni:

Rannveig Anna Guicharnaud: kr. 1.000.000,-

Vegna mastersverkefnis um lífrænt niðurbrot PCB í jarðvegi

Ungmennahreyfing Hafnarfjarðardeildar Rauða krossins: kr. 900.000,-

Til reksturs á ungmennastarfi

Prímadonnur Íslands (Auður Gunnarsdóttir o.fl.): kr. 700.000,-

Til tónleikahalds í Víðistaðakirkju til styrktar Mæðrastyrksnefnd

Björgunarsveitin Skyggnir, Vogum: kr. 500.000,-

Til kaupa á björgunarbát

Byggðasafn Hafnarfjarðar: kr. 500.000,-

Til að koma gömlum báti, Fleyg ÞH 310, í upprunalegt horf

Einar Búi Magnússon o.fl.: kr. 500.000,-

Vegna samstarfs við Harvey Mudd College í Kaliforníu um þróun aðferðar til að framleiða rafmagn úr hita

Lögreglan á Selfossi: kr. 500.000,-

Til kaupa á tækjabúnaði til að mæla aflögun ökutækja í alvarlegum umferðarslysum

Verkfræðingafélag Íslands: kr. 400.000,-

Vegna ritunar á sögu kvenna í verkfræði

Jónas G. Halldórsson: kr. 350.000,-

Vegna taugasálfræðilegra rannsókna á afleiðingum höfuðáverka barna og unglinga

Bjarmalundur, ráðgjafarstofa um Alzheimer og öldrun: kr. 300.000,-

Til reksturs ráðgjafarstofunnar

Háskólinn í Reykjavík: kr. 300.000,-

Vegna verkefnisins Ólympíustærðfræði fyrir grunnskóla

Heimili og skóli: kr. 300.000,-

Vegna átaks gegn einelti

Hjálparsveit skáta, Kópavogi: kr. 300.000,-

Til kaupa á tólf Zarges álboxum

Kór Öldutúnsskóla: kr. 300.000,-

Vegna söngferðalags á Íslendingaslóðir í Kanada

Lilja Rúriksdóttir: kr. 300.000,-

Vegna náms í danslist við Juilliard háskólann í New York

Margrét Sesselja Magnúsdóttir: kr. 300.000,-

Til söngskemmtana fyrir aldraða með heilabilun

Samhjálp: kr. 300.000,-

Til reksturs á kaffistofu Samhjálpar

Steinunn Sigurðardóttir: kr. 300.000,-

Vegna sýningar á fatahönnun á Kjarvalsstöðum

List án landamæra: kr. 250.000,-

Vegna Listar án landamæra, listahátíðar fatlaðra og þroskahamlaðra

Meistarhópur fimleikadeildar Stjörnunnar: kr. 250.000,-

Vegna þátttöku á Norðurlandamóti í hópfimleikum í Finnlandi

Anna Svanhildur Daníelsdóttir: kr. 100.000,-

Vegna lokaverkefnis í leikskólafræðum (þróun á spili fyrir leik- og grunnskólabörn sem stuðlar að hreyfingu þeirra)

Höndin, mannúðar- og mannræktarsamtök: kr. 100.000,-

Til starfsemi samtakanna

Jiu-Jitsu skóli Íslands: kr. 100.000,-

Til barna- og unlingastarfs skólans

Kærleikssjóður Stefaníu Guðrúnar Pétursdóttur: kr. 100.000,-

Framlag til sjóðsins

Lára Jóhannsdóttir: kr. 100.000,-

Vegna doktorsrannsóknar á sviði umhverfisstjórnunar í fyrirtækjum

Rut Þorsteinsdóttir: kr. 100.000,-

Vegna náms við lýðháskólann í Danmörku

Héðinn Steingrímsson: kr. 50.000,-

Vegna þátttöku í Evrópumóti landsliða í skák í Serbíu

Jason Kristinn Ólafsson: kr. 50.000,-

Vegna þróunar á vefnum Tilvitnun.is

Technis, nemendafélag tækni- og verkfræðinema við Háskólann í Reykjavík: kr. 50.000,-

Vegna ferðar til Tallin á ráðstefnu um umhverfisvæna orkuöflun

Gert er ráð fyrir að næsta úthlutun úr sjóðnum fari fram í janúar næstkomandi.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX