
Lyfjarisinn Glaxio-SmithKline hefur ásamt Nabi Pharmaceuticals hafið þróun á bóluefni sem hjálpar reykingamönnum að hætta að reykja, að því er fram kemur á vefnum Vísindin.is.
Þar segir:
„Bóluefnið, NicVAX virkar þannig að það kemur í veg fyrir að nikótínið komist í heilann, kemur það þá í veg fyrir að reykingamaðurinn upplifi neina af þeim ánægjutilfinningum sem gera reykingar svona ávanabindandi. Sprautan dugar í um það bil mánuð og reykingamaðurinn þyrfti líklega sprautu mánaðarlega í 6 mánuði til að vera viss um að fíkninni sé endanlega lokið.
Bóluefnið örvar ónæmiskerfið til þess að framleiða mótefni gegn örsmárri nikótín sameindinni, sem er aðalávanabindandi efnið í tóbaksreyk. Mótefnin binda sig við nikótínið og samsetningin er of stór til að komast frá blóðinu inní heilann.
Tilraunir með fimm sprautanir voru gerðar af fimm stofnunum, þar á meðal háskólanum í Kaliforníu, sýndu þær að varan hjálpaði 50% reykingamanna að hætta á meðan tilrauninni stóð. Í annari tilraun var reykingamönnunum gefnar sex sprautur af bóluefninu og í þeirri tilraun þá fengu 80% reykingamannana nægt magn af nikótín mótefnum.
Forseti líffræðideildar Glaxio-SmithKline, Jean Stephanie, sagði að ef bóluefnið yrði leyft og sett á markað þá gæti það hjálpað milljónum manna um allan heim að hætta að reykja. Talið er að um 70% reykingamanna reyni að hætta á hverju ári en aðeins 5-15% ná að hætta í meira en ár án þess að byrja aftur.
Það eru margar aðrar vörur sem hjálpa reykingamönnum við að hætta að reykja, t.d. tyggjó, nefúðar og plástrar, fyrir marga reykingamenn er samt erfitt að byrja ekki aftur. Þessi hjálpartæki útvega nikótín með öðrum aðferðum en að reykja sígarettur. Með því að fá skammt af nikótíni þá minnka fíkniáhrifin og leyfa líkamanum að aðlagast því að vera laus við reykingar. Skammtar eru minnkaðir þangað til inntöku nikótíns er algjörlega hætt. Mikið af fólki byrjar aftur að reykja þegar skammturinn er minnkaður eða inntöku nikótíns er hætt. NicVAX virkar á algjörlega annan hátt þar sem það kemur í veg fyrir að nikótínið komist inní heilann.
Bóluefni sem hjálpar fólki að hætta algjörlega að reykja gæti bjargað milljónum mannslífa um allan heim og skorið af fjárhagsbyrðinni á heilsukerfið vegna reykingatengdra vandamál. Ef síðustu prófin fyrir NicVAX eru árangursrík þá gæti það verið komið á markað eftir rúmlegar ár.“
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.
Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóðabankann
Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóðabankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einkafyrirtæki í þróunarríkjum.